Ók ölvaður á bifreið

mbl.is/Hjörtur

Snemma í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um ökumann sem hafði ekið aftan á bifreið á Reykjanesbraut. Hann er grunaður um ölvun við akstur.

Rúmlega 10 hafði lögreglan svo afskipti af ökumanni í Austurbæ Reykjavíkur sem er grunaður um að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert