Vonarstræti um allar jarðir

Þorvaldur Davíð, Hera Hilmarsdóttir og Þorsteinn Backmann fara með aðalhlutverkin …
Þorvaldur Davíð, Hera Hilmarsdóttir og Þorsteinn Backmann fara með aðalhlutverkin í Vonarstræti.

Þýska fyrirtækið Films Boutique mun sjá um dreifingu á kvikmyndinni Vonarstræti víða um heim. Myndin verður tekin til almennra sýninga í kvikmyndahúsum erlendis í byrjun næsta árs og þegar er búið að ákveða sýningar á henni í Kanada, Tékklandi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi.

Myndin sem er eftir leikstjórann Baldvin Z hefur notið gríðarlegra vinsælda meðal íslenskra kvikmyndahúsagesta en rúmlega 44 þúsund manns hafa séð myndina hér á landi.

Í fréttatilkynningu segir að Film Boutique hafi m.a. á sínum snærum kvikmyndir eftir leikstjóra á borð við Andrzev Wajda og  Alexander Sokurov að ógleymdum framleiðendum eins og Angelinu Jolie. Þá hafa myndir Films Boutique hlotið Óskarsútnefningar og Silfurbjörninn í Berlín, Gullljónið í Feneyjum auk verðlauna á Sundance-hátíðinni í Bandaríkjunum.

Vefsíða Film Boutique.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert