Bílslys hjá Hvammstanga

Sex voru fluttir á spítala eftir umferðaróhapp á veginum að …
Sex voru fluttir á spítala eftir umferðaróhapp á veginum að Hvammstanga í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Ekið var aftaná bifreið á leið norður í átt að Hvammstanga á fimtma tímanum í dag. Sex voru fluttir á sjúkrahús og báðar bifreiðir þurfti að flytja af vettvangi með dráttarbíl.

Ekki var talið að meiðslin væru mjög alvarleg en frekari upplýsingar um ástand þeirra liggja þó ekki fyrir.

Slysið átti sér stað þar sem beygt er útaf þjóðvegi eitt í átt að Hvammstanga. Fjórir erlendir ferðamenn voru í bílnum sem keyrt var á, sem var Kia jepplingur í bílaleigu, og tveir Íslendingar í bílnum sem ók á þá, sem var Toyta Corolla. Báðir bílar voru í besta standi og á góðum dekkjum fyrir slysið, að sögn lögreglu, en eru nú flokkaðir sem tjónabílar. Enginn er grunaður um akstur undir áhrifum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert