Hringdi 70 sinnum í Neyðarlínuna

Konan hringdi 70 sinnum í Neyðarlínuna.
Konan hringdi 70 sinnum í Neyðarlínuna. mbl.is/Júlíus

Konan sem handtekin var rétt fyrir klukkan fimm í nótt hringdi sjötíu símtöl í 112, símanúmer Neyðarlínunnar, á tveimur stuttum tímabilum í nótt.

Þegar konan lét ekki af háttsemi sinni, þrátt fyrir margítrekaðar beiðnir þar um, var hún handtekin. Hún gistir fangaklefa þar til af henni rennur.

Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Neyðarlínunnar eru atvik sem þessi ekki algeng, þ.e. þegar einstaklingur hringir ítrekað í 112, en þó komi það af og til fyrir. Símtölin konunnar í nótt voru þó óvenju mörg, sé litið til fyrri tilvika.

Frétt mbl.is: Hringdi látlaust í Neyðarlínuna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert