Hringdi látlaust í Neyðarlínuna

Kona var handtekin rétt fyrir klukkan fimm í nótt en hún hafði hringt látlaust í Neyðarlínuna án tilefnis.

Þar sem hún lét ekki af háttsemi sinn, þrátt fyrir margítrekaðar beiðnir þar um, var hún handtekin og gistir hún fangageymslu þar til af henni rennur.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur einnig fram að tíu manns gisti nú fangageymslur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert