Í undanúrslit í kafbátakeppni

Kafbáturinn Ægir.
Kafbáturinn Ægir. Af Facebook-síðu liðsins

Nemendur við Háskólann í Reykjavík eru komnir í undanúrslit alþjóðlegu kafbátakeppninnar RoboSub í San Diego í Bandaríkjunum. Undanúrslitin fara fram í dag og á morgun en úrslitakeppnin er á sunnudag. Í keppninni leysa kafbátar liðanna þrautir sem felast til dæmis í að komast í gegnum hlið, sleppa hlutum í fötur á botni laugar, elta uppi hljóðgjafa, finna rétta bauju og skjóta pílu í rétt skotmark. Kafbátarnir þurfa að vera algjörlega sjálfráða sem þýðir að ekki má hafa nein samskipti við bátana á meðan þeir leysa þrautirnar. Alls taka 39 lið þátt í keppninni og koma þau víðsvegar að úr heiminum, segir í frétt frá Háskólanum í Reykjavík.

Á síðasta ári var sigurvegari keppninnar Cornell University (Bandaríkin), í öðru sæti var University of Florida (Bandaríkin) og í þriðja sæti var Far Eastern University (Rússland).

Kafbátur Háskólans í Reykjavík heitir Ægir og notar hann tvær myndavélar, þrjá hljóðnema, hröðunarnema, gýró, þrýstinema og seguláttavita til þess að skynja umhverfi sitt og sex mótora til þess að stýra sér. Í ár var ytra byrði kafbátsins endursmíðað og var tillit tekið til betri stýringar og aðgengis að rafmagnsbúnaði og rafhlöðum. Stjórnkerfi kafbátsins var einnig endurforritað og myndgreiningarhugbúnaður þróaður áfram. Liðið bindur einnig miklar vonir við að nýtt hljóðkerfi sem hannað var í ár muni reynast vel við að elta uppi hljóðgjafa við lokaþraut brautarinnar.

Þetta er í fjórða skipti sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í Robosub. Besti árangur liðsins var árið 2011 þegar kafbáturinn Freyja komst í úrslit og náði 4. sæti. Markmið liðsins er að komast í úrslit á sunnudaginn. Í undanúrslitum fær liðið eina tilraun í dag og aðra á morgun (laugardag) til þess að leysa þrautabrautina og gildir betri árangur liðsins í baráttunni um að komast í úrslit. Keppnistími liðsins í dag er kl. 14:00 á staðartíma (22:00 á íslenskum).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert