Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir dreng á fjórtánda ári, Guido Javier Japke Varas, sem saknað hefur verið síðan á miðvikudag. Síðast var vitað af honum á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Guido er 175 cm á hæð, grannvaxinn, dökkhærður og brúneygur. Lögreglan biður þá sem vita um Guido að hafa samband í síma 488 4110.