Umferð orðin þung á Suðurlandsvegi

Umferðin á Suðurlandsvegi er þung að sögn lögreglu á Selfossi.
Umferðin á Suðurlandsvegi er þung að sögn lögreglu á Selfossi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Að sögn lögreglu á Selfossi er umferð orðin nokkuð þung á Suðurlandsveginum en margir eiga leið um Suðurlandið í dag. Margir eru eflaust á leið til Landeyjahafnar í Herjólf og þá er einnig nokkuð um að fólk dvelji í sumarhúsum á Suðurlandi.

Umferðin hefur gengið mjög vel fyrir sig í dag að sögn lögreglu. Engin óhöpp hafa komið upp en lögregla heldur úti öflugu eftirliti á svæðinu. Umferðin gengur hægar en venjulega og eru vegfarendur hvattir til að taka lífinu með ró og sýna biðlund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert