Sjá mátti feiknastórt olíuflutningaskip liggja við landfestar í Reykjavíkurhöfn í gær. Skipið heitir Maxwell Bay og samkvæmt upplýsingum frá Faxaflóahöfnum er það rúm þrjátíu þúsund brúttótonn, 177 metra langt og 32 metra breitt.
Í Morgunblaðinu í dag segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, skipið vera óvenjustórt.
„Þetta skip er með þeim tignarlegri sem hingað hafa komið, og nálgast í raun hámark þeirrar lengdar á skipum sem við getum tekið á móti. Þau rista djúpt þessi skip,“ segir Gísli.