Fimmtán fíkniefnamál í Eyjum

Frá Þjóðhátíð.
Frá Þjóðhátíð. mbl.is/Ómar

Fimmtán minniháttar fíkniefnamál komu upp í Vestmannaeyjum í nótt þar sem þjóðhátíð fer nú fram. Þá var tilkynnt um þrjár minniháttar líkamsárásir. Fimm gistu fangageymslur vegna ölvunar og leiðinda að sögn lögreglu.

Að öðru leyti gekk nóttin þokkalega vel fyrir sig að sögn lögreglu. Um tólf til þrettán þúsund manns eru á þjóðhátíð að sögn lögreglu og voru í gær mun fleiri komn­ir á svæðið en á sama tíma í fyrra. „Það stefn­ir í mjög fjöl­menna hátíð,“ sagði Hörður Grett­is­son í þjóðhátíðar­nefnd í samtali við mbl í gær.

Lögreglan í Vest­manna­eyj­um nýtur auk­ins liðstyrks vegna versl­un­ar­manna­helgar­inn­ar og voru tólf lögreglumenn við störf í nótt í stað tveggja, eins og væri vana­lega til­fellið, auk sex til viðbót­ar frá fíkni­efna­lög­regl­unni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert