Gekk í skrokk á móður sinni

mbl.is/júlíus

Lögreglu barst á níunda tímanum í gærkvöldi tilkynning um mann sem var að ganga í skrokk á móður sinni. Maðurinn var handtekinn og gistir hann fangageymslu þar til víman af honum rennur og unnt verður að yfirheyra hann.

Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og að sögn lögreglu voru þeir aðilar sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af mjög ölvaðir og erfiðir. Sex aðilar gista fangageymslur eftir nóttina.

Tilkynnt var um líkamsárás í miðborginni rétt fyrir klukkan eitt í nótt þar sem einn maður réðst á þrjá og veitti þeim minniháttar áverka en gerandinn er ókunnur.

Rétt fyrir klukkan fimm í nótt var kona handtekin þar sem hún var trítilóð að sögn lögreglu. Hún er nú vistuð í fangageymslu sökum ástands.

Átta voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um ölvunarakstur og fluttir til sýnatöku á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert