Líkamsárás á Akureyri

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás í miðbæ Akureyrar á fimmta tímanum í nótt. Þar skellti árásarmaðurinn öðrum manni niður og sparkaði í hann þar sem hann lá á jörðinni. Árásarmaðurinn var handtekinn og gistir nú fangageymslur.

Maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en hefur verið útskrifaður.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri gekk nóttin vel fyrir sig að öðru leyti og rólegt var yfir í skemmtanalífinu. Fjölmargir eru mættir til Akureyrar á fjölskylduhátíðina Eina með öllu og að sögn lögreglu eru tjaldstæðin að fyllast þótt erfitt sé að slá tölu á fjölda gesta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert