Tveir í fangageymslu vegna óláta

Frá mýrarboltanum.
Frá mýrarboltanum. Eva Björk Ægisdóttir

Tveir gistu fangageymslur á Ísafirði í nótt vegna ölvunar og óláta en fjölmargir eru þar staddir vegna Evrópumeistaramótsins í Mýrarbolta sem fram um helgina. Að sögn lögreglu virtist vera pirringur og spenna í fólki sem var þreytt eftir langan vinnudag og ferðalag en skemmtanalífið fór vel fram í nótt að öðru leyti.

Að sögn lögreglu var fólk að streyma inn í djúpið langt fram eftir nóttu og er tjaldsvæðið í Tungudal að fyllast. Umferðin fór vel fram og voru sárafáir teknir fyrir of hraðan akstur.

Fyrstu leikirnir í mýrarboltanum hefjast klukkan tíu og standa til klukkan 18.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert