Byrjað að slátra fyrir Bandaríkjamarkað

Hauststörfin eru hafin í sveitum landsins þótt ekki sé kominn …
Hauststörfin eru hafin í sveitum landsins þótt ekki sé kominn miður ágúst. Byrjað er að fara með fé í sláturhús, fátt í fyrstu. mbl.is/Styrmir Kári

Fyrsta sauðfjárslátrun ársins var á Hvammstanga í gær. Þar var slátrað um sex hundruð kindum og fer lambakjötið allt ferskt á Bandaríkjamarkað.

Sláturhús KVH á Hvammstanga þjónar sælkeraverslunum Whole Foods Markets. Skrokkarnir eru sagaðir niður og sendir með flugi til Bandaríkjanna. Ef allt gengur að óskum verður kjötið komið í búðir strax eftir helgi.

Sláturhúsið hefur sinnt þessum útflutningi í nokkur ár. Fyrsta haustið fóru um 25 tonn af lambakjöti út en útflutningurinn jókst um 30-50% á ári þar til fyrir tveimur árum að hann var kominn í 200 tonn. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Magnús Freyr Jónsson framkvæmdastjóri stefnt að aukningu í 250 tonn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert