Er fimm stiga skjálfti það sem þarf?

Bárðarbunga.
Bárðarbunga. mbl.is/Sigurður Bogi

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur veltir upp þeim möguleika í grein á vef sínum hvort kröftugur jarðskjálfi að stærð fimm á Richter sé það sem þarf til að koma af stað eldgosi í Bárðarbungu á Vatnajökli.

Í greininni fjallar hann um innri gerð Bárðarbungu og fer yfir sögu óvenjulegra jarðskjálfta í eldfjallinu. Vitnar hann meðal annars í rannsóknir prófessorsins Görans Ekström. Ekström segir að undir Bárðarbungu sé keilulaga jarðskorputappi og telur hann að skjálftar í eldstöðinni, sem séu af stærðinni yfir fimm stig á Richter, séu afleiðing af þrýstingi af þessum tappa.

„Nú virðist skjálftavirknin raða sér í hringlaga form eftir útlínum öskjunnar. Er það orsakað af hreyfingu tappans, sem Ekström sér undir Bárðarbungu?  Er þá kvika að safnast fyrir í grunnu kvikuþrónni ofan tappans? Samkvæmt hans líkani er þá von á skjálftum af stærðargráðunni 5, þegar tappinn þrystist niður,“ segir Haraldur í grein sinni.

Enn eru eng­in merki um að eld­gos sé hafið við Bárðarbungu, en sérfræðingar hafa tekið fram að ekki sé hægt að úti­loka að at­b­urðarás­in sem sé í gangi leiði að lokum til eld­goss und­ir Vatnajökli eða und­an hon­um.

Jarðskjálftahrinan sem hófst um klukkan þrjú aðfaranótt laugardags er enn í gangi, en virknin hefur hins vegar færst til og er nú í tveimur þyrpingum, norðan og austan við Bárðarbungu. Vísindamenn telja að virknin orsakist af innskotavirkni kviku í jarðskorp­unni. Gos und­ir jökli getur leitt til flóða i ám sem renna frá hon­um. Vís­inda­menn og Al­manna­varnir fylgjast vel með ástand­inu og er óvissu­stig enn í gildi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert