Vesturbæjarlaug lokuð vegna framkvæmda

Vesturbæjarlaugin.
Vesturbæjarlaugin. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Vesturbæjarlaugin er lokuð vegna framkvæmda.

Sundlauginni var lokað í dag og munu framkvæmdirnar standa yfir þar til á föstudaginn 21. ágúst þegar laugin verður opnuð að nýju. Þetta kemur fram á vefnum sundlaugar.is.

Í framkvæmdunum á að mála gömlu potta laugarinnar, tæma og þrífa sundlaugina og fjarlægja ruslagám á lóðinni. Þá verða útiklefar lagaðir og færðir í fyrra horf að nýju ásamt því að klórkerfi laugarinnar verður endurnýtt að hluta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert