Frítt í strætó á Menningarnótt

Frá hátíðinni í fyrra. Búast má við fjölmenni í miðborginni …
Frá hátíðinni í fyrra. Búast má við fjölmenni í miðborginni á laugardag. mbl.is/Rósa Braga

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur borgarbúa og aðra gesti Menningarnætur til að nýta sér ókeypis strætóferðir á laugardag. Undirbúningur fyrir hátíðina er í fullum gangi og bendir lögreglan á að miðborg Reykjavíkur verði meira eða minna lokuð fyrir umferð á meðan viðburðum stendur.

Þetta kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar. Fram kemur að séð verði til þess að strætisvagnakerfið komi fólki hratt og vel í og úr bænum. 

Nánari upplýsingar á heimasíðu Menningarnætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert