Komum leðurblakna til landsins fjölgar til muna

Alls hafa átta tegundir af leðurblökum fundist á Íslandi.
Alls hafa átta tegundir af leðurblökum fundist á Íslandi. Ljósmynd/fr.questmachine.org

Nýlega birtist í alþjóðlegu fagtímariti, Acta Chiropterologica, yfirlitsgrein um fund leðurblakna á eyjum við norðaustanvert Atlantshaf og Norðursjó.

Ísland er þar á meðal en fram kemur í greininni að alls hafa átta tegundir af leðurblökum fundist á Íslandi með vissu fram til loka ársins 2012.

„Seinasta aldarfjórðunginn hefur komum þeirra til landsins fjölgað til muna. Engin ein ástæða er fyrir þeirri fjölgun en þó eru líkur á því að notkun á gámum og aukin umferð skipa eigi stóran þátt á því,“ segir Ævar Petersen, dýrafræðingur, meðal annars um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert