Lögreglumaðurinn neitar sök

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur mbl.is/Hjörtur

Mál á hendur lögreglumannsins í LÖKE-málinu var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn neitaði sök við báðum liðum.

Verjandi mannsins fer fram á málinu verði vísað frá.

Maðurinn hefur verið ákærður fyrir tvö brot í opinberu starfi. 

Fyrri ákæru­liður teng­ist meint­um óeðli­leg­um flett­ing­um í mála­skrár­kerfi lög­regl­unn­ar, LÖKE, á tíma­bil­inu 7. októ­ber 2007 til 16. nóv­em­ber 2013. Maður­inn er sakaður um að hafa mis­notað stöðu sína sem lög­reglumaður þegar hann fletti upp nöfn­um 45 kvenna í kerf­inu og skoðaði upp­lýs­ing­ar um þær, án þess að flett­ing­arn­ar tengd­ust starfi hans í lög­regl­unni.

Í síðari ákæru­lið er hann sakaður um að hafa þann 20. ág­úst 2012 sent tölvu­skeyti á sam­skipt­asíðunni Face­book um af­skipti sín af ung­um manni í starfi sínu sem lög­reglumaður, sem átti að fara leynt.

Næsta fyrirtaka í málinu verður fimmtudaginn 28. ágúst. Þá verður afstaða tekin til í frávisunarkröfu verjanda ákærða um ákæruna annað hvort í heild sinni eða hluta hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert