TF-SIF fylgist með Bárðarbungu

Flugvél Landhelgisgæslunnar reyndist mjög vel í Eyjafjallagosinu árið 2010 og …
Flugvél Landhelgisgæslunnar reyndist mjög vel í Eyjafjallagosinu árið 2010 og hefur meðfylgjandi radarmynd tekin af gosstöðvunum í Eyjafjallajökli farið víða um heim og vakið athygli. mynd/Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF er nú á leið heim frá Sikiley á Ítalíu.  Vélin hefur viðkomu til eldsneytistöku í Bretlandi og er væntanleg til landsins seinnipartinn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni.

Fram kemur, að TF-SIF sé búin ratsjám sem geti kortlagt yfirborð gosstöðvanna og jökulsins og gert vísindamönnum kleift að fylgjast með breytingum á yfirborði jökulsins og hraunflæði óháð skýjafari og birtu. Búnaðurinn geti einnig kortlagt breytingar á mannvirkjum, svo sem vegum, brúm og rafmagnslínum sem hugsanlega geti orðið fyrir skemmdum vegna flóða. 

Þá gerir vélin vísindamönnum unnt að fylgjast grannt með dreifingu og hæð öskustróks.  Flugvélin er einnig búin hitamyndavél sem gagnast við að meta ástandið á svæðinu og þróun mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert