Lokað fyrir báta og skipaumferð

Flugeldasýning á Menningarnótt í fyrra.
Flugeldasýning á Menningarnótt í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

Meðan flugeldasýning menningarnætur stendur yfir, frá kl. 22:50 til 23:20 á laugardag, mun afmarkað svæði innan Reykjavíkurhafnar, umhverfis Faxagarð, verða lokað fyrir allri báta og skipaumferð að sögn Landhelgisgæslunnar.

Fram kemur á vef Gæslunnar, að eftirlitsbætur LHG verði á svæðinu með hlustvörslu á rás 16 og 12 ásamt bátum frá Landsbjörg.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar mun einnig senda út tilkynningu til sjófarenda með reglulegu millibili í gegnum VHF.

Sjá má kort af svæðinu á vef Gæslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert