Lýst eftir Birni Hjálmarssyni

mbl.is/Hjörtur

Uppfært 19:21

Björn er fundinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurlandi lýsa eftir Birni Hjálmarssyni, 51 árs.

Síðast er vitað um ferðir hans í kringum Vatnsholt fyrir austan Selfoss í kringum hádegi í dag. Björn var þá á bifreiðinni ZR-H23, sem er svartur Ford Exlporer jeppi árgerð 2007. Ekki er vitað hvert hann ætlaði sér þaðan.

Björn Hjálmarsson er fæddur árið 1963 (51 árs), u.þ.b. 170 cm á hæð, meðal maður að vexti, með dökkt stutt hár og brún augu. Hugsanlega er hann klæddur grænni peysu og gallabuxum.

Þeir sem verða varir við Björn eða bifreiðina ZR-H23 eru beðnir um að hafa strax samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í símanúmerið 444-1000.  Jafnframt er skorað á Björn að láta vita af ferðum sínum hið fyrsta.

Björn Hjálmarsson
Björn Hjálmarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert