Sjúkrahúsið á Akureyri hefur samið við Björn Sigurðsson röntgenlækni um að sinna brjóstakrabbameinsskoðunum til áramóta hið minnsta. Björn hefur sinnt þessum skoðunum undanfarin ár. Þetta kemur fram á fréttavefnum Vikudegi.
Vikudagur greindi frá því fyrr í sumar að konur á Akureyri og nágrenni sem leita þurfa læknis vegna gruns um brjóstakrabbamein sáu fram á að ferðast til Reykjavíkur þar sem engin læknir sinnti klínískum brjóstaskoðunum fyrir norðan.