Gylfi keyptur 255.000 sinnum í Fantasy

Skjáskot af Fantasy

Rúmlega 255.000 þátttakendur í Fantasydeild ensku úrvalsdeildarinnar bættu Gylfa Sigurðssyni við lið sitt milli umferða. Hann stóð sig mjög vel í leik Swansea gegn Manchester United, þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp annað.

Leikmenn í liðum þátttakenda fá stig eftir því hversu vel þeir standa sig í leikjum hverrar viku. Þannig fá þeir 3 stig fyrir stoðsendingu og ýmist 4 til 6 stig fyrir hvert mark. Sóknarmenn fá 4 stig, miðjumenn 5 stig og varnarmenn markmaður 6 stig fyrir að skora, auk þess sem aðrir þættir gefa einnig stig, svo sem ef varnarmenn og markmaður halda hreinu eða hann ver vítaskot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert