Nýir framkvæmdastjórar á Landspítala

Ný framkvæmdastjórn Landspítalans. Páll Matthíasson, forstjóri LSH, er fremstur fyrir …
Ný framkvæmdastjórn Landspítalans. Páll Matthíasson, forstjóri LSH, er fremstur fyrir miðju.

Gengið hefur verið frá ráðningu sjö framkvæmdastjóra klínískra sviða á Landspítala. Alls bárust 25 umsóknir frá 19 einstaklingum en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka á lokastigum málsins.

Páll Matthíasson, forstjóri LSH, greinir frá þessu á heimasíðu spítalans. 

Páll segir, að hlutverk nýrrar framkvæmdastjórnar sé að leiða uppbyggingu næstu ára á Landspítala. „Það ríður því á að í framkvæmdastjórn veljist hópur með fjölbreytta og víðtæka reynslu sem deilir áherslum og framtíðarsýn fyrir Landspítala, þjóðarsjúkrahúsið. Mér þykir hafa tekist vel til,“ segir Páll í tilkynningu á vef LSH.

Nýju framkvæmdastjórarnir eru:

  1. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðissviðs (bráða-, öldrun, endurhæfing)
  2. Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs
  3. Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs
  4. Jón Hilmar Friðriksson, framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs
  5. María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs
  6. Alma D. Möller, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs
  7. Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs

Páll segir að þau muni taka sæti í nýrri framkvæmdastjórn sem hefur störf 1. september. Auk hans sitja þar áfram aðstoðarforstjóri, framkvæmdastjórar lækninga, hjúkrunar, fjármálasviðs og rekstrarsviðs auk starfsmannastjóra. 

Samhliða tekur gildi nýtt skipurit Landspítala

Nánar á vef LSH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert