Draga niðurstöðu hatursorðaskýrslu í efa

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.

Í gær fór fram kynning í borgarráði á skýrslu Bjarneyjar Friðriksdóttur um greiningu hatursorðræðu í ummælakerfum íslenskra netfréttamiðla sem unnin var fyrir mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar.

Borgarráðsfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, lagði fram svohljóðandi bókun:

„Um leið og við fögnum umræðu um hatursorðræðu í ummælakerfum íslenskra netfréttamiðla, þá teljum við að niðurstöðu skýrslunnar (bls. 24–25) megi draga verulega í efa, þar sem tæp 40% þeirra ummæla sem skoðuð voru féllu fyrir utan það tímabil (1. mars 2013–1. mars 2014) sem skýrsluhöfundi var falið að skoða.

Alls voru skoðuð 14.815 ummæli og af þeim voru 5.725 tengd umræðu um byggingu mosku í Reykjavík í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 2014 og er það 40% af rannsóknarandlaginu. Við skýrslugerðina var fylgst með umræðu um byggingu mosku fram í júlí 2014 en önnur rannsóknarandlög ekki skoðuð á framlengdu tímabili. Eru slík vinnubrögð ómarktæk og gera annars góða vinnu afar haldlita við greiningu verkefnisins.“

Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata í borgarráði bókuðu hins vegar eftirfarandi:

„Borgarráðsfulltrúarnir þakka fyrir mikilvægt framlag til greiningar á hatursorðræðu í samfélaginu. Brýnt er að niðurstöðurnar verði nýttar í frekari vinnu til upprætingar fordóma og hatursorðræðu og að Reykjavíkurborg láti ekki sitt eftir liggja í þeim efnum.“

Hatrið mest í garð múslima

Úr ráðhúsi Reykjavíkur.
Úr ráðhúsi Reykjavíkur. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert