Handtekinn í mjög annarlegu ástandi

mbl.is/júlíus

Maður var handtekinn í bifreið við Smiðjuveg í Kópavogi um ellefuleytið í gærkvöldi. Hann var í mjög annarlegu ástandi og vildi ekki gefa lögreglu persónuupplýsingar um sig og er vistaður í fangageymslu þangað til ástand hans lagast.

Um kvöldmatarleytið var tilkynnt um umferðaróhapp í Salahverfi í Kópavogi en þar hafði léttu bifhjóli verið ekið yfir gangbraut í veg fyrir bifreið. 

Ungur maður, sem var á bifhjólinu, datt í götuna og meiddist á fæti. Að sögn lögreglu var hann fluttur á bráðamóttöku með sjúkrabifreið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert