Karl settur sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli

Karl V. Matthíasson.
Karl V. Matthíasson. mynd/Kirkjan

Biskup Íslands hefur ákveðið að setja séra Karl V. Matthíasson í embætti sóknarprests í Grafarholtsprestakalli til eins árs, frá og með 1. september. Þá hefur biskup ákveðið að skipa séra Óskar Hafstein Óskarsson í embætti sóknarprests í Hrunaprestakalli í Suðurprófastsdæmi. 

Frestur til að sækja um embættið í Hrunaprestakalli rann út 5. ágúst sl.

Séra Karl er skipaður í leyfi dr. Sigríðar Guðmarsdóttur sóknarprests. 

Óskar Hafsteinn Óskarsson.
Óskar Hafsteinn Óskarsson. mynd/Kirkjan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert