Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út fyrr í dag vegna göngukonu sem meiddist á fæti ofarlega í Reykjadal. Talið var að bera þyrfti konuna töluverðan spotta en þegar að var komið var ljóst að hægt var að koma björgunarsveitabíl að slysstað.
Slysavarnafélagið Landsbjörg segir í tilkynningu, að um klukkan 15:30 hafi konan svo verið komin í björgunarsveitarbílinn sem aki nú til móts við sjúkrabíl sem mun flytja hana undir læknishendur.