Eldur í Hafnarfirði

Eldur kom upp í kjallaraíbúð í Hafnarfirði nú fyrir skömmu.
Eldur kom upp í kjallaraíbúð í Hafnarfirði nú fyrir skömmu. mbl.is/Árni Sæberg

Eldur kom upp í kjallaraíbúð í Hafnarfirði um þrjúleytið. Reykkafarar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hafa verið sendir inn í íbúðina en talið var, þegar tilkynning barst slökkviliði, að hundar væru inni í húsinu.

Ekki er talið að um stórbruna sé að ræða en talsverðan reyk leggur af íbúðinni að sögn slökkviliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert