Sama viðbúnaðarstig áfram

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra mun halda sama viðbúnaðarstigi norðan Vatnajökuls í kvöld og nótt. Staðan verður svo endurmetin í fyrramálið. Þetta þýðir að núverandi rýmingum verður ekki aflétt í bili. 

Í kvöld fór fram fundur viðbragðsaðila í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Nú eru vísindamenn sem sátu fundinn að taka saman stöðuna á jarðhræringunum við Dyngjujökul. Fljótlega verður slík stöðuskýrsla birt.

Fylgist með á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert