Sjóðheitt kaffi helltist yfir barn

Sjóðheitt kaffi helltist yfir ungbarn í Austurbæ Reykjavíkur í dag. Tilkynning um málið barst lögreglu kl. 16.03. Sjúkrabíll var sendur á staðinn og var barnið flutt á slysadeild til aðhlynningar. 

Í nógu hefur verið að snúast hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. KL. 11.06 var ekið á reiðhjólamann í Skipasundi. Hann hlaut minniháttar meiðsl.

Í dag hefur verið tilkynnt um þjófnaði í verslunum í Austurbæ Reykjavíkur, Hafnarfirði og Kópavogi. 

Kl. 11.54 í  morgun var tilkynnt um slasaðan mann í Grafarholti. Grunur er um að hann hafi orðið fyrir líkamsárás.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert