Þrír skjálftar yfir 3 að stærð

Kort ÍSOR af Bárðarbungu.
Kort ÍSOR af Bárðarbungu.

Í nótt og í morgun hafa mælst þrír skjálftar við Bárðarbunguöskjuna sem eru yfir 3 að stærð. Ekkert lát er því á skjálftahrinunni í Bárðarbungu. Ekki sjást merki um að kvika sé á leið til yfirborðs.

Skjálftarnir þrír komu kl. 03:22, stærð 3,3, kl. 05:33, stærð 3,6 og kl. 07:02, en hann var 3,6 að stærð.

Skjálftavirknin er á svipuðu róli og í gær og það sjást engin merki um gosóróa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert