Björgunarsveit send með hjólbarða

Hjólbarði. Mynd úr safni.
Hjólbarði. Mynd úr safni.

Vatnaveiðimenn urðu fyrir því óláni að það tvísprakk á bíl þeirra, og voru því aðeins þrjú heil hjól undir bíl þeirra og varadekkið ónýtt.

Lögreglan á Sauðárkróki greip til þess ráðs að senda björgunarsveitarmenn til þeirra með nýjan hjólbarða til að koma mönnunum og bílnum til byggða. 

Veiðimennirnir höfðu það þó mjög gott meðan á biðinni stóð, enda vel klæddir og nestaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert