Einn fluttur á slysadeild

mbl.is/Hjörtur

Einn var fluttur á slysadeild eftir harðan tveggja bíla árekstur sem varð á Gatnamótum Stórhöfða og Gullinbrúar í kvöld. Talið er að ökumaður annarrar bifreiðarinnar hafi ekið yfir á rauðu ljósi með fyrrgreindum afleiðingum.

Tilkynning um slysið barst kl. 18:40 og var aðgerðum á vettvangi lokið um 20 mínútum síðar. 

Nánari upplýsingar um meiðsl viðkomandi liggja ekki fyrir að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert