Ferðamenn 75% stöðvaðra

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Hvolsvelli hefur það sem af er ári stöðvað 1.375 ökumenn vegna hraðaksturs. Af þeim var aðeins aðeins fjórðungur með íslenskt ríkisfang og hlutfall erlendra ferðamanna því 75%. Ekki hafa fleiri ökumenn verið stöðvaðir í umdæminu frá því á sama tíma árið 2008.

Meira en 90% þessara mála er lokið með greiðslu sektar á staðnum, en í nokkrum tilfellum hafa ökumenn verið sviptir ökuréttindum. „Sem fyrr höfum við lagt mikla áherslu á þennan málaflokk þar sem margir og fjölfarnir vegir liggja um og í gegnum umdæmið.
Við hvetjum alla þá sem ferðast hér um að að áætla sér nægan tíma til ferðalaga og njóta útsýnisins á leið sinni í gegnum umdæmið.


Við viljum hvetja alla þá sem koma að samskiptum við erlenda ferðamenn til að ræða hámarkshraða á vegum landsins og nauðsyn þess að fylgja þeim lögum og reglum sem hér eru settar,“ segir á facebooksíðu embættisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert