Sambandslaus við umheiminn

Kort af Vestfjörðum
Kort af Vestfjörðum Fjórðungssamband Vestfjarða/Landmælingar

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga gagnrýnir harðlega þá viðkvæmu stöðu sem er uppi í fjarskiptamálum Vestfirðinga og sýnt hafi sig í dag þegar þegar víðtæk bilun kom upp í búnaði Mílu og farsímakerfi Símans. „Vegna þessarar bilunar er stór hluti Vestfjarða sambandslaus við umheiminn í margar klukkustundir og ljóst að alvarlegt ástand hefur skapast þar sem ekki er hægt að hringja í lögreglu eða aðra viðbragðsaðila.“

Í yfirlýsingu kemur fram að Fjórðungssamband Vestfirðinga og sveitarstjórnir á Vestfjörðum hafi ítrekað bent á mikilvægi þess að ljósleiðarinn sem liggur um Vestfirði sé hringtengdur, en eins og staðan er í dag þá er ekkert varasamband fjarskipta um svæðið. „Slíkt óöryggi er algerlega óviðunandi og verður ekki búið við lengur.“

Þá skorar stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga á innanríkisráðuneytið og Alþingi Íslendinga að leysa úr þessum vanda með hringtengingu ljósleiðarans hið snarasta. „Að auki verði gerð opinber rannsókn á því hvað úrskeiðis fór til að svona ástandi komi ekki upp aftur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert