„Mikilvægt er að fjárlög 2015 verði aðhaldssöm og að dregið verði enn frekar úr útgjöldum,“ segir í nýrri greiningu efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Þau telja að öðrum kosti myndist lítið svigrúm til að greiða niður skuldir og lækka vaxtakostnað ríkisins.
Í greiningunni segir að þrátt fyrir að nú sex árum eftir bankahrunið stefni í afgang af rekstri ríkissjóðs hafi aðhald á útgjaldahlið ekki verið fullnægjandi.
„Stjórnvöld settu fram fjögurra ára rammaáætlun í ársbyrjun 2009 til að koma á jafnvægi í ríkisrekstri. Tilgangur áætlunarinnar var að auka festu í útgjaldastýringu ríkisins og stuðla að aðhaldi í rekstri. Lagt var upp með að farin yrði blönduð niðurskurðar og skattahækkana til að ná settum markmiðum. Á endanum reyndist niðurskurður ríkisútgjalda ekki nægjanlegur og meginþungi aðlögunarinnar hefur því verið í formi skattahækkana.
Framúrkeyrsla ríkisútgjalda er viðtekin venja og eftirfylgni áætlana verulega ábótavant. Mikilvægt er að fjárlög 2015 verði aðhaldssöm og að dregið verði enn frekar úr útgjöldum. Að öðrum kosti myndast lítið svigrúm til að greiða niður skuldir og lækka vaxtakostnað ríkisins. Í ljósi reynslunnar er þó ekki nóg að setja fram metnaðarfull markmið um niðurskurð heldur þarf að tryggja að slíkum markmiðum sé framfylgt.“