Barn flutt á slysadeild

mbl.is/Hjörtur

Barn var flutt á slysadeild Landspítalans um áttaleytið eftir slys á gangbraut í Vatnsendahverfinu. Ekki er talið að meiðsl þess séu alvarleg, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slysið átti sér stað á mótum Breiðahvarfs og Vatnsendavegar og var barnið á reiðhjóli er slysið átti sér stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert