Kynna nýja áætlun um rýmingu

Kvikan er komin út í Holuhraun við Dyngjujökul með stefnu …
Kvikan er komin út í Holuhraun við Dyngjujökul með stefnu nálægt Öskju. Vísindamenn skoðuðu svæðið í eftirlitsflugi með flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, í gær. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Sýslumaðurinn á Húsavík er að ljúka vinnu við gerð áætlunar um rýmingu vegna hugsanlegs jökulhlaups í Skjálfandafljóti. Hálendið er enn lokað, sem og Jökulsárgljúfur.

Erlendur ferðamaður var í gær stöðvaður á lokuðum vegi sem liggur áleiðis inn á mesta hættusvæðið, við Öskju.

Vísindamannaráð almannavarna telur ekki ástæðu til að breyta mati sínu á ástandinu og hugsanlegum afleiðingum. Það leiðir til þess að viðbúnaði er viðhaldið og svæðin norðan Vatnajökuls og meðfram Jökulsá eru enn lokuð. Jafnframt hefur sýslumaðurinn á Húsavík unnið að rýmingaráætlun fyrir Skjálfandafljót, sem er næsta vatnasvið fyrir vestan Jökulsá, vegna hugsanlegs jökulhlaups. Svavar Pálsson sýslumaður segir að áætlunin verði kynnt á íbúafundi í Ljósvetningabúð annað kvöld og leitað eftir sjónarmiðum fólks.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert