Tommaborgari sá besti í London

Besti borgarinn í London.
Besti borgarinn í London. Ljósmynd/Facebook

Hvar er hægt að fá besta hamborgarann í Lundúnum? Að mati blaðamanns breska blaðsins Independent er það á Hamborgarabúllu Tómasar, eða Tommi's Burger Joint. Einfaldleiki er lykillinn að efsta sætinu að mati blaðsins.

Samantekt yfir 10 bestu staðina er að finna á vef Independent sem birtist í dag. 

Í umsögn blaðamanns segir m.a., að þrátt fyrir að líta út eins og teiknimyndahamborgari, þá er Tommaborgarinn sá besti í london. Kjötið sé ljúffengt og brauðið mjúkt og gott.

Sérstaklega er mælt með ostborgarnum. „Að vissu leyti minnir hann mann á eitthvað sem faðir þinn myndi reiða fram við grillið, ef hann myndi standa við grillið hvert sumarið á fætur öðru í rigningunni í þeim tilgangi einum að fullkomna réttinn,“ segir í umsögninni í lauslegri þýðingu blaðamanns mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert