Á slysadeild eftir brotlendingu

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. mbl.is/Kristinn

Tveir voru fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans eftir að fisvél brotlenti á Þingvallavegi í Mosfellsbæ fyrr í kvöld. Fólkið er ekki alvarlega slasað en vissara þótti að láta lækni skoða það.

Fisvélin rakst á ljósastaur rétt áður en hún lenti á veginum. Atvikið varð um kl. 18:30 í kvöld og voru lögregla og sjúkralið kölluð á vettvang auk fulltrúa frá rannsóknarnefnd flugslysa.

Ekki liggur fyrir hvers vegna vélin lenti á Þingvallavegi, en veginum var lokað um óákveðinn tíma á meðan rannsókn stendur yfir.

Fisvél hlekktist á við lendingu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert