Fleiri skjálftar, nýtt sjónarhorn

Ljósmynd/Skjáskot

Veðurstofa Íslands hefur útbúið myndband þar sem sjá má tíðni skjálfta á tíu daga tímabili frá 16. ágúst. Þá sést einnig á hvaða dýpt skjálftarnir hafa orðið, en mismunandi litir punkta á kortinu sýna dagafjölda frá 16. ágúst þegar skjálftarnir eiga sér stað. 

Eins og fram kemur í frétt mbl.is er talið að vatns­staða Grím­s­vatna hafi hækkað um 5 til 10 metra á síðustu dög­um, sem sam­svar­ar því að 10 til 30 millj­ón rúm­metr­ar af vatni hafi bæst í vötn­in. Þá kom fram á fundi vísindaráðs í morgun að skjálftavirkni er svipuð og undanfarna daga, en um miðnætti voru þrír skjálft­ar u.þ.b. 4 að stærð og einn 5 að stærð kl. 08:13 í morg­un, all­ir í Bárðarbungu.

Frétt mbl.is: Vatnsstaða hækkað um 5-10 metra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert