Björguðu hnúfubaki úr netatrossu

Hnúfubakurinn fastur í netatrossunni.
Hnúfubakurinn fastur í netatrossunni. Skjáskot/Vimeo

Áhöfn varðskipsins Ægis bjargaði í gær hnúfubak sem hafði fest sig í netatrossu sem Gammi SK 12 var að draga á Skagafirði. Brösuglega gekk að nálgast skepnuna en hún reyndi að synda sig lausa með tilheyrandi látum. Það fór svo að lokum að varðskipsmenn náðu að skera á teininn svo hnúfubakurinn losnaði.

Á vefsvæði Landhelgisgæslunnar segir að skipstjórinn á Gammi SK 12 hafi haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 11:07 í gærmorgun og óskað eftir aðstoð gæslunnar við að losa hnúfubak sem hafði fest sig í netatrossu sem hann var að draga á Skagafirði. Hann hafði reynt að losa hann sjálfur en hafði við það tapað hakanum sínum þegar hvalurinn sló hann frá sér með sporðinum. Taldi hann sig því ekki eiga annarra kosta völ en að óska eftir aðstoð. Áhöfn varðskipsins Ægis var við vinnu um borð við höfnina á Sauðárkróki og hélt léttabátur skipsins áleiðis út fjörðinn og var kominn að hvalnum rúmum hálftíma eftir að óskin barst. 

„Brösuglega gekk að nálgast skepnuna en hann reyndi að synda sig lausan með tilheyrandi buslugangi og látum. Það var ljóst að blýteinn netatrossunnar var fastur um sporðinn á hvalnum og lítið gekk hjá honum að slíta sig frá. Annar hnúfubakur var þá kominn á staðinn og virtist vera að meta aðstæður. Það fór svo að lokum að varðskipsmenn náðu að skera á teininn svo hnúfubakurinn losnaði og spratt af stað. Hann þakkaði fyrir sig með einu sporðakasti og sást svo ekki meir,“ segir í frétt Gæslunnar.

Áhöfn varðskipsins Ægis bjargar hnúfubak á Skagafirði/Coast guard rescues a humpback whale, entangled in a n from Landhelgisgaeslan on Vimeo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert