„Þetta er ekki endanleg niðurstaða“

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að álit EFTA-dómstólsins í verðtryggingamálinu, sem lá fyrir í morgun, sé ekki endanleg niðurstaða í málinu. Dómstóllinn hafi hins vegar komist að þeirri grundvallar niðurstöðu að verðtryggingin sé ekki ólögmæt.

Eins og fram hef­ur komið á mbl.is í morg­un EFTA-dóm­stóll­inn ráðgef­andi álit sitt vegna dóms­máls sem rekið er fyr­ir Héraðsdómi Reykja­vík­ur gegn Íslands­banka hf. Í mál­inu er deilt um hvort verðtrygg­ing­ar­á­kvæði í skulda­bréfi sem gefið var út í tengsl­um við fast­eigna­kaup telj­ist ósann­gjarn samn­ings­skil­máli þannig að því megi víkja til hliðar í skiln­ingi a. – c. liðar í 36. gr. samn­ingalaga nr. 7/​​1936, með síðari breyt­ing­um. Um­rædd ákvæði komu inn í samn­inga­lög­in 1995 með inn­leiðingu á til­skip­un 93/​​13/​​EBE, um ósann­gjarna skil­mála í neyt­enda­samn­ing­um.

„Eins og ég sé það, þá er megin niðurstaðan sú að dómstóllinn tekur ekki skýra afstöðu til þess hvort að reglugerðin taki til þessara samninga. Hann vísar stærstu álitamálunum heim til íslenskra dómstóla. En á sama tíma er ekki komist að þeirri niðurstöðu að verðtryggingin, hvað sem öðru líður, sé ólögmæt. Það er út af fyrir sig ákveðin grundvallar niðurstaða í málinu, en málið heldur áfram fyrir íslenskum dómstólum og þetta er ekki endanleg niðurstaða á nokkurn hátt,“ segir Bjarni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert