Dottaði undir stýri og endaði þversum

mbl.is/Hjörtur

Betur fór en á horfðist þegar ökumaður bifreiðar í  umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum dottaði undir stýri með þeim afleiðingum að bifreiðin endaði þversum á akbrautinni. Áður hafði bifreiðin farið yfir umferðareyju, lent á móti umferð, farið yfir aðra umferðareyju og þar yfir umferðarskilti.

Þá óku erlendir ferðamenn bílaleigubíl á hlið sem lokar námunum við Stapafell. Framrúðan í bifreiðinni brotnaði, auk fleiri skemmda sem á henni urðu við atvikið. Hliðið skemmdist töluvert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert