Háseti féll útbyrðis og dróst með voðinni

Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lögreglan á Suðurnesjum segir að mannbjörg hafi orðið í vikunni þegar háseti á Arnþóri GK 20 féll útbyrðis.  Hann var við vinnu aftan til á skipinu þegar hann flækti sig og dróst útbyrðis með voðinni. Maðurinn náði að komast úr sjóstakki, buxum og stígvélum, þótt hann sæti fastur í voðinni, en gat losað sig úr henni eftir það.

Siglt var með hann rakleiðis í land og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum ætlaði hann að fara á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar, að því er segir í tilkynningu.

Þar kemur einnig fram, að annað óhapp á sjó hafi orðið í vikunni þegar maður var að blóðga löngu um borð í Tjaldanesi GK 525. Langan var sprelllifandi og þegar hann tók hana upp, snéri hún snöggt upp á sig með þeim afleiðingum að maðurinn missti allan mátt í þumli vinstri handar um stund. Hann fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem í ljós kom að þumalfingurinn var ekki brotinn en mjög bólginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert