Landsmenn hugi að heilsunni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

Forsætisráðherra segir að landsmenn verði allir að átta sig á mikilvægi þess að bæta heilsu og velferð í samfélaginu þrátt fyrir annasöm störf. Hann fagnar því að ráðherranefnd um lýðheilsumál hafi haldið sinn fyrsta fund í dag.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, að tofnun nefndarinnar sé í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands, þar sem kveðið er á um að bætt lýðheilsa og forvarnarstarf verði meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar. 

Það er forsætisráðherra sem stýrir nefndinni í samræmi en auk hans eiga heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra fast sæti í nefndinni. Aðrir ráðherrar taka þátt í störfum hennar eftir þörfum, samkvæmt ákvörðun forsætisráðherra.

,,Það er fagnaðarefni að nefndin skuli vera komin af stað. Eins og kemur fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er bætt lýðheilsa og forvarnastarf meðal forgangsverkefna. Það er ánægjulegt að þetta sé komið af stað af krafti og við munum skoða hvernig lýðheilsa getur tengst sem flestum áherslumálum ríkisstjórnarinnar. Ég held að allir skilji mikilvægi þess að bæta heilsu og velferð og sjálfur er ég þar engin undantekning. Við verðum öll að átta okkur á því að þrátt fyrir annasöm störf verðum við að gefa okkur tíma til að huga að þessum málum.  Við hér í forsætisráðuneytinu reynum að setja hreyfingu á dagskrá okkar um leið og við hugum að mataræðinu. Farsælast er ef fólk getur gert þessa þætti að lífsmáta sínum,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í tilkynningu. 

Samhliða stofnun ráðherranefndar var ákveðið að setja á fót ráðgefandi nefnd – lýðheilsunefnd – undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra. Meginhlutverka lýðheilsunefndar er að vinna drög að heildstæðri stefnumótun og aðgerðaráætlun sem hefur það að markmiði að efla og bæta lýðheilsu á öllum aldursskeiðum með sérstakri áherslu á börn og ungmenni. Nefndin skal skila heilbrigðisráðherra og ráðherranefndinni tillögum sínum eigi síðar en í árslok 2015.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert