Rusl brann á svölum

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrir skömmu þar sem talið var að kviknað hefði í húsi við Tröllateig í Mosfellsbæ. Í ljós kom að kviknað hafði í rusli á svölum hússins og því var slökkiliði snúið við á leið á vettvang.

Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu sást eldur af svölum hússins og svartur reykur og því þótti öruggast að senda allt tiltækt lið á staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert