Ferðamenn á hálendinu í ógöngum

Þetta tré í Árbænum í Reykjavík féll í óveðrinu í …
Þetta tré í Árbænum í Reykjavík féll í óveðrinu í morgun. mbl.is/Golli

Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma því á framfæri að nú er ekkert ferðaveður á hálendinu frekar en víða um land. Í morgun hefur hálendisvakt björgunarsveita staðið í ströngu við að aðstoða ferðamenn sem eru að leggja á hálendið eða þar á ferð. Meðal annars hafa brotnað rúður í bílum og þeir farið á bólakaf í vatnsföllum á svæðinu. 

Í Landmannalaugar og um Fjallabak nyrðra er því sem næst ófært vegna vatnavaxta og mikils sandstorms og biður Slysavarnafélagið Landsbjörg starfsfólk bensínstöðva, veitingastaða og annarra viðkomustaða ferðamanna að vara þá eindregið við að vera á ferð meðan veðrið gengur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert